Handbolti

Löwen í undan­úr­slit þrátt fyrir fína frammi­stöðu Orra Freys

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Orri Freyr átti góðan leik.
Orri Freyr átti góðan leik. @SCPModalidades

Rhein Neckar Löwen frá Þýskalandi er komið í undanúrslit Evrópudeildar karla í handbolta þrátt fyrir eins marks tap gegn Sporting frá Portúgal í kvöld.

Leik kvöldsins lauk með sigri Sporting, 29-28. Skoraði Orri Freyr Þorkelsson þrjú mörk fyrir Portúgalana. Það dugði þó ekki til þar sem Löwen vann fyrri leik liðanna með þriggja marka mun og einvígið því með tveggja marka mun, 60-58.

Ýmir Örn Gíslason komst ekki á blað hjá Löwen í kvöld en nældi sér í gult spjald og tvær tveggja mínútna brottvísanir. Hann fer til Göppingen í sumar en áður en það gerist gæti hann orðið Evrópudeildarmeistari með Löwen sem mætir Füchse Berlín í undanúrslitum. 

Í hinni undanúrslitarimmunni mætast Flensburg og Dinamo Búkarest. Úrslitahelgi Evrópudeildarinnar fer fram í Hamburg í Þýskalandi dagana 25. og 26. maí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×